19. apríl
Útlit
Mar – Apríl – Maí | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | ||||
2024 Allir dagar |
19. apríl er 109. dagur ársins (110. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 256 dagar eru eftir af árinu.
Atburðir
- 1246 - Í Blönduhlíð í Skagafirði var Haugsnesfundur, en þar börðust Brandur Kolbeinsson og Þórður kakali um völd. Meira en hundrað manns féllu í bardaganum og er þetta mannskæðasta orusta sem háð hefur verið á Íslandi.
- 1409 - Bréf skrifað í Hvalsey á Grænlandi til að votta um brúðkaup sem þar var haldið árið áður. Þetta bréf er síðasta staðfesta heimildin um búsetu norrænna manna á Grænlandi.
- 1689 - Amalíuborg í Kaupmannahöfn brann eftir óperusýningu. 170 manns fórust í brunanum.
- 1770 - Brúðkaup Loðvíks 16. Frakkakonungs og Marie Antoinette í Vínarborg.
- 1770 - James Cook skipstjóri sá strönd Ástralíu.
- 1887 - Landsbanki Íslands var sameinaður Sparisjóði Reykjavíkur.
- 1917 - Leikfélag Akureyrar var stofnað. Það var upphaflega áhugamannafélag, en hefur rekið atvinnuleikhús síðan 1973.
- 1923 - Alþýðubókasafn Reykjavíkur, sem síðar var nefnt Borgarbókasafn Reykjavíkur tók til starfa.
- 1954 - Fermingarbörn í Akureyrarkirkju voru klædd hvítum kyrtlum sem var nýjung á Íslandi.
- 1956 - Rainier III, fursti af Mónakó giftist bandarísku leikkonunni Grace Kelly.
- 1968 - Ralph Plaisted varð fyrstur til að komast á Norðurheimskautið svo óumdeilt sé.
- 1971 - Charles Manson var dæmdur til dauða fyrir hlutdeild í morðinu á Sharon Tate.
- 1975 - Siglingaklúbburinn Þytur í Hafnarfirði var stofnaður.
- 1995 - Sprengjutilræðið í Oklahómaborg. 169 manns fórust.
- 2005 - Benedikt XVI var kjörinn páfi.
Fædd
- 1793 – Ferdinand 1. Austurríkiskeisari (d. 1875).
- 1912 – Glenn Seaborg, bandarískur efnafræðingur og Nóbelsverðlaunahafi (d. 1999).
- 1925 - Guðmundur Steinsson, íslenskt leikskáld (d. 1996).
- 1933 – Jayne Mansfield, bandarísk leikkona (d. 1967).
- 1935 – Dudley Moore, breskur leikari og tónskáld (d. 2002).
- 1941 - Alan Price, breskur tónlistarmaður (The Animals).
- 1946 – Tim Curry, breskur leikari.
- 1970 - Jón Páll Eyjólfsson, íslenskur leikari.
- 1972 - Hinrik Hoe Haraldsson, íslenskur leikari.
- 1981 – Hayden Christensen, kanadískur leikari.
Dáin
- 1244 - Tumi Sighvatsson yngri, drepinn á Reykhólum (f. 1222).
- 1246 - Brandur Kolbeinsson, höfðingi Ásbirninga (f. 1209).
- 1390 - Róbert 2., Skotakonungur (f. 1316).
- 1560 - Philipp Melanchthon, þýskur siðbótarmaður (f. 1497).
- 1689 - Kristín Svíadrottning (f. 1626).
- 1738 - Þrúður Þorsteinsdóttir, biskupsfrú á Hólum, (f. 1666).
- 1824 - Byron lávarður, enskt skáld (f. 1788).
- 1881 - Benjamin Disraeli, breskur stjórnmálamaður og forsætisráðherra (f. 1804).
- 1882 - Charles Darwin, enskur náttúrufræðingur (f. 1809).
- 1906 - Pierre Curie, franskur eðlisfræðingur og nóbelsverðlaunahafi (f. 1859).
- 1914 - Charles Sanders Peirce, bandarískur heimspekingur (f. 1838).
- 1967 – Konrad Adenauer, þýskur stjórnmálamaður og kanslari (f. 1876)
- 1974 - Ayub Khan, forseti Pakistan (f. 1907).
- 1989 – Daphne du Maurier, breskur rithöfundur (f. 1907).
- 1992 – Benny Hill, enskur gamanleikari (f. 1924).
- 1998 - Octavio Paz, mexíkóskur rithöfundur (f. 1914).
- 2005 – Niels-Henning Ørsted Pedersen, danskur djasstónlistarmaður (f. 1946).