14. maí
Útlit
Apr – Maí – Jún | ||||||
Su | Má | Þr | Mi | Fi | Fö | La |
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | |
2024 Allir dagar |
14. maí er 134. dagur ársins (135. á hlaupári) samkvæmt gregoríska tímatalinu. 231 dagur er eftir af árinu. Dagurinn er fánadagur á Íslandi vegna afmælis forseta Íslands.
Atburðir
- 1027 - Hinrik 1. Frakkakonungur var krýndur meðkonungur föður síns í Reims. Hann fékk þó lítil sem engin völd.
- 1264 - Orrustan um Lewes: Simon de Montfort vann sigur á her Hinriks 3. konungs.
- 1608 - Mótmælendasambandið var stofnað í Auhausen í Þýskalandi.
- 1610 - Hinrik 4. Frakkakonungur var myrtur í París af kaþólska öfgamanninum Jean-François Ravaillac.
- 1643 - Loðvík 14. tók við völdum í Frakklandi fjögurra ára gamall.
- 1769 - Karl 3. Spánarkonungur sendi trúboða til Kaliforníu og var það upphaf landnáms hvítra manna þar.
- 1796 - Edward Jenner bólusetti átta ára dreng, James Phipps, við kúabólu og var það fyrsta bólusetningin.
- 1842 - Fyrsta tölublað tímaritsins Illustrated London News kom út.
- 1912 - Friðrik 8. Danakonungur fannst látinn í Hamborg. Það var ekki fyrr en daginn eftir að menn áttuðu sig á því hver þetta væri. Kristján 10., sonur hans, tók við krúnunni.
- 1919 - Átta klukkustunda vinnudagur var lögfestur í Danmörku.
- 1922 - Fimm skip fórust og með þeim 44 sjómenn í norðan ofsaveðri, sem gekk yfir norðan- og austanvert landið.
- 1935 - Gamla Litlabeltisbrúin í Danmörku var opnuð.
- 1948 - David Ben-Gurion, forsætisráðherra lýsti yfir stofnun Ísraelsríkis.
- 1955 - Varsjárbandalagið var stofnað í Varsjá í Póllandi. Stofnríki voru: Sovétríkin, Pólland, Austur-Þýskaland, Tékkóslóvakía, Ungverjaland, Rúmenía, Búlgaría og Albanía. Tilgangur þess var að vera mótvægi við Atlantshafsbandalagið (NATO).
- 1959 - Pétur Ottesen, sem verið hafði þingmaður lengur en nokkur annar, eða í 43 ár, hætti þingmennsku.
- 1965 - Fokker Friendship-flugvél Flugfélags Íslands, sú fyrsta sinnar tegundar, kom til landsins, en slíkar vélar voru síðan notaðar í innanlandsflugi í áratugi.
- 1970 - Ulrike Meinhof hjálpaði Andreas Baader að flýja með því að setja upp viðtal í bókasafni vegna meints bókasamnings.
- 1973 - Fyrsta geimstöð Bandaríkjanna, Skylab, var sett í loftið.
- 1986 - Mikhaíl Gorbatsjev kom fram í sjónvarpi og lýsti kjarnorkuslysinu við Tsjernóbýl í fyrsta sinn.
- 1986 - Söngleikurinn Chess eftir Benny Andersson and Björn Ulvaeus, var frumsýndur á West End í London.
- 1987 - Sitiveni Rabuka leiddi herforingjauppreisn á Fídjieyjum.
- 1988 - 27 létust þegar ölvaður ökumaður ók á rútu á þjóðvegi 71 í Kentucky í Bandaríkjunum.
- 1989 - Mikhaíl Gorbatsjev fór í opinbera heimsókn til Kína.
- 1995 - Dalai Lama lýsti því yfir að Gedhun Choekyi Nyima væri 11. endurfæðing Panchen Lama.
- 1995 - Team New Zealand vann Ameríkubikarinn í San Diego með 5-0 sigri á heimaliðinu, Stars and Stripes.
- 1998 - Síðasti Seinfeld-þátturinn var sendur út.
- 2002 - Netþjónn Apple, Xserve, var settur á markað.
- 2002 - Golfklúbbur Álftaness var stofnaður.
- 2003 - Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, gekk að eiga Dorrit Moussaieff.
- 2003 - Fjöldagröf með líkamsleifum 3000 manna var uppgötvuð í Hilla, 90 km frá Bagdad.
- 2004 - Friðrik krónprins Dana gekk að eiga Mary Elizabeth Donaldson frá Ástralíu.
- 2008 - 20 létust í sprengjutilræði við jarðarför í Abu Minasir í Írak.
- 2011 - Dúettinn Ell & Nikki sigraði Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2011 fyrir Aserbaísjan með laginu „Running Scared“.
- 2013 - 51 lést og 140 særðust þegar bílsprengja sprakk í tyrkneska bænum Reyhanlı.
- 2016 - Jamala sigraði Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2016 fyrir Úkraínu.
- 2017 - Emmanuel Macron tók við embætti forseta Frakklands.
- 2018 - 60 Palestínumenn voru skotnir til bana í mótmælum á Gasa gegn því að Bandaríkjamenn opnuðu sendiráð í Jerúsalem.
Fædd
- 1414 - Frans 1., hertogi af Bretagne (d. 1450).
- 1553 - Margrét af Valois, Frakklandsdrottning, kona Hinriks 4. (d. 1615).
- 1710 - Adólf Friðrik Svíakonungur (d. 1771).
- 1727 - Thomas Gainsborough, enskur listmálari (d. 1788).
- 1761 - Samuel Dexter, bandarískur stjórnmálamaður (d. 1816).
- 1906 - Hastings Banda, fyrrum forseti Malaví (d. 1997).
- 1943 - Ólafur Ragnar Grímsson, 5. forseti Íslands.
- 1944 - George Lucas, bandarískur kvikmyndaleikstjóri.
- 1946 - Sigríður Anna Þórðardóttir, íslenskur stjórnmálamaður.
- 1952 - David Byrne, skosk-amerískur tónlistarmaður.
- 1953 - Norodom Sihamoni, konungur Kambódíu.
- 1962 - C.C. Deville, bandarískur tónlistarmaður (Poison).
- 1964 - Néstor Gorosito, argentínskur knattspyrnumaður.
- 1965 - Eoin Colfer, írskur rithöfundur.
- 1967 - Rondey Robinson, bandarískur körfuknattleiksmaður.
- 1969 - Cate Blanchett, áströlsk leikkona.
- 1970 - Kenichi Shimokawa, japanskur knattspyrnumaður.
- 1971 - Oséas Reis dos Santos, brasilískur knattspyrnumaður.
- 1984 - Mark Zuckerberg, bandarískur frumkvöðull.
Dáin
- 649 - Theodór 1. páfi.
- 964 - Jóhannes 12. páfi.
- 1470 - Karl Knútsson Bonde, konungur Svíþjóðar (f. 1409).
- 1610 - Hinrik 4. konungur Frakklands (f. 1553).
- 1643 - Loðvík 13. konungur Frakklands (f. 1601).
- 1649 - Friedrich Spanheim, hollenskur guðfræðingur (f. 1600).
- 1667 - Georges de Scudéry, franskur rithöfundur (f. 1601).
- 1678 - Anna Maria van Schurman, hollenskt skáld (f. 1607).
- 1761 - Thomas Simpson, breskur stærðfræðingur (f. 1710).
- 1856 - Jón Snorrason, bæjarfulltrúi í Reykjavík (f. 1787).
- 1912 - Friðrik 8. Danakonungur (f. 1843).
- 1912 - August Strindberg, sænskt leikskáld (f. 1849).
- 1931 - Viktor Dyk, tékkneskt skáld (f. 1877).
- 1940 - Emma Goldman, bandarískur stjórnleysingi (f. 1869).
- 1952 - Þorbjörg Sigurðardóttir Bergmann, íslensk hannyrðakona (f. 1876).
- 1987 - Rita Hayworth, bandarísk leikkona (f. 1918).
- 1998 - Frank Sinatra, bandarískur söngvari og kvikmyndaleikari (f. 1915).
- 2000 - Obuchi Keizo, fyrrum forsætisráðherra Japans (f. 1937).