Sendiráð
Sendiráð eru starfsstöðvar utanríkisþjónustu lands erlendis. Innan sendiráða starfa stjórnarerindrekar sem vinna eiga að hagsmunum viðkomandi lands í erlendum löndum. Sendifulltrúar eru sendiherrar og aðrir starfsmenn utanríkisþjónustu erlendis. Störf sendiráðs eru til dæmis útgáfu vegabréfa og vegabréfa-áritana, bera skilaboð milli stjórnmálamanna og stofnana landa í millum, aðstoða ríkisborgara sem standa fyrir viðburðum í viðkomandi landi eða hafa lent í vandræðum erlendis svo sem verið fangelsaðir.
Íslensk sendiráð
[breyta | breyta frumkóða]Ísland rekur sendiráð í Austurríki (Vínarborg), Bandaríkjunum (Washington), Belgíu (Brussel), Bretlandi (London), Danmörku (Kaupmannahöfn), Finnlandi (Helsinki), Frakklandi (París), Indlandi (Nýju-Delí), Ítalíu (Róm), Japan (Tókýó), Kanada (Ottawa), Kína (Peking), Malaví (Lílongve), Mósambík (Mapútó), Namibíu (Windhoek), Noregi (Osló), Rússlandi (Moskvu), Srí Lanka (Kolombo), Suður-Afríku (Pretoríu), Svíþjóð (Stokkhólmi), Úganda (Kampala), Þýskalandi (Berlín) og Pólland (Varsjá).