Fara í innihald

Kristín Eysteinsdóttir

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Kristín Eysteinsdóttir (f. 2. febrúar 1974) er rektor Listaháskóla Íslands[1]. leikstjóri og fyrrverandi leikhússtjóri Borgarleikhússins.

Kristín lauk BA-prófi í dramatúrgíu frá Árósarháskóla í Danmörku árið 2002 og meistaragráðu í leikstjórn frá Goldsmiths, University of London árið 2007. [2]

Kristín hefur leikstýrt fjölda verka, m.a. í Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Hafnarfjarðarleikhúsinu og Nemendaleikhúsinu. Hún var fastráðin leikstjóri við Borgarleikhúsið frá 2008-2014 en var ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins árið 2014.[3] Kristín hlaut Grímuna, sviðslistaverðlan Leiklistarsambands Íslands sem leikstjóri ársins árið 2008 fyrir leikstjórn sína á sýningunni Sá ljóti í Þjóðleikhúsinu.[4]

Áður en Kristín snéri sér að leiklistinni starfaði hún á vettvangi tónlistar, m.a. sem söngkona, trúbador og laga- og textasmiður. Árið 1995 gaf hún út eigin breiðskífu, Litir þar sem hún flutti eigin lög og texta[5] og frá 1996-2000 var hún söngkona kvennahljómsveitarinnar Ótukt.[6]

Sambýliskona Kristínar er Signý Scheving aðstoðaryfirljósmóðir á Landspítalanum[7] og fyrrverandi eiginkona hennar er Katrín Oddsdóttir lögfræðingur og eiga þær saman tvö börn.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Máni Snær Þorláksson (apríl 2023). „Kristín ráðin rektor Listaháskóla Íslands“. visir.is. Sótt september 2024.
  2. Ruv.is, „Kristín ráðin borgarleikhússtjóri“, (skoðað 23. júní 2019)
  3. Visir.is, „Nýr borgarleikhússtjóri er Kristín Eysteinsdóttir“ (skoðað 23. júní 2019)
  4. Griman.is, „Handhafar Grímuverðlaunanna árið 2008“, (skoðað 23. júní 2019)
  5. Árni Matthíasson, „Fjölskrúðugir litir“, Morgunblaðið, 7. nóvember 1995 (skoðað 23. júní 2019)
  6. Glatkistan.com, „Ótukt 1996-2000“ (skoðað 23. júní 2019)
  7. Svava Marín Óskarsdóttir (júní 2023). „Ástin blómstraði hjá Kristínu og Signýju í Róm“. visir.is. Sótt september 2024.

[1][2][3]

  1. Árni Sæberg (febrúar 2024). „Lista­há­skólinn fellir niður skóla­gjöld“. Vísir.is. Sótt Sept 2024.
  2. Tilvísunar villa: Villa í <ref> tag; tilgreindu texta fyrir tilvísun með nafnið :0
  3. Tilvísunar villa: Villa í <ref> tag; tilgreindu texta fyrir tilvísun með nafnið :1