Eugene Terre'Blanche
Eugène Ney Terre'Blanche (31. janúar 1941 – 3. apríl 2010) var afríkanskur Búi sem stofnaði samtökin Afrikaner Weerstandsbeweging (AWB) á tímum aðskilnaðar hvítra og svartra í Suður Afríku. Þau börðust hatrammlega gegn afnámi aðskilnaðarstefnunnar og hótuðu borgarastyrjöld í aðdraganda fyrstu frjálsu kosninganna í landinu. Terre'Blanche var um aldamótin dæmdur í 6 ára fangelsi fyrir morðtilraun og afplánaði þrjú ár af dómnum. Allt til dauðadags var hann leiðtogi AWB og þrýsti á um sérstakt ríki hvítra Búa innan Suður-Afríku.
Bakgrunnur
[breyta | breyta frumkóða]Terre'Blanche fæddist árið 1941 á sveitabýli í Transvaal bænum Ventersdorp í Suður-Afríku. Afi hans barðist fyrir Búa í seinna Búastríðinu, og faðir hans var ofursti í landher Suður-Afríku.
Nafnið Terre'Blanche („Hið hvíta land“ eða „Hin hvíta jörð“ úr frönsku) má rekja til franska húganottans Estienne Terreblanche frá Toulon, sem kom til Höfðaborgar árið 1704.
Stjórnmálaferill
[breyta | breyta frumkóða]Afrikaner Weerstandsbeweging
[breyta | breyta frumkóða]Terre'Blanche barist á sjöunda áratugnum gegn því sem hann kallaði „frjálslynda stefnu“ í B.J. Vorster, þá forsætisráðherra í Suður-Afríku. Terre'Blanche stofnaði árið 1970 með sex öðrum Búum, samtökin Afrikaner Weerstandsbeweging (AWB). Samtökin náðu á sínum tíma 70.000 félagsmönnum af hægri væng hvítra íbúa Suður Afríku. Megináherslan var á kynþáttahyggju með yfirráðum hvíta kynstofnsins og nýfasisma.
Hótanir og hryðjuverk
[breyta | breyta frumkóða]Terre'Blanche leit á endalok aðskilnaðarstefnunnar sem uppgjöf við kommúnisma og hótaði borgarastyrjöld ef þáverandi forseti Suður-Afríku F. W. de Klerk afhenti völd til Nelson Mandela og samtaka hans Afríska þjóðarráðsins. Þegar De Klerk hélt fund í Ventersdorp heimabæ Terre'Blanche, árið 1991, stýrði Terre'Blanche mótmælum sem enduðu í átökum AWB við lögreglu og fjöldi fólks lét lífið. Árið 1993 stýrði hann meðal annars innrás í World Trade Centre í Kempton Park í Höfðaborg til að trufla samningaviðræður milli minnihlutastjórnar hvítra og leiðtoga svartra.
Átök og fangelsi
[breyta | breyta frumkóða]Terre'Blanche og samtök hans AWB voru mjög áberandi í suður-afrískum og alþjóðlegum fjölmiðlum á áttunda og níunda áratugnum. Samtökin biðu verulegan hnekki í átökum þegar sjálfsstjórnarríkið Bophuthatswana sameinaðist að fullu Suður Afríku. Tugir manna létu þá lífið. Hótun Terre'Blanche um borgarastríð gekk aldrei eftir.
Þann 17. júní 2001 var Terre'Blanche dæmdur í sex ára fangelsi, fyrir mjög alvarlega líkamsárás á starfsmann bensínstöðvar og morðtilraunar á öryggisverði árið 1996. Hann var látinn laus eftir þrjú ár.
Náðun
[breyta | breyta frumkóða]Eftir lok aðskilnaðarstefnu, leituðu Terre'Blanche og stuðningsmenn hans náðunar vegna árásarinnar á World Trade Centre, átakanna í Ventersdorp, og annarra gerða. Náðun var veitt „Sannleiks og sáttanefndinni“ svokölluðu sem sett var á fót þegar aðskilnaðarstefnan var afnumin.
Í mars 2008 boðuðu AWB samtökin endurkomu í stjórnmál Suður Afrískra stjórnmála. Ástæður þess voru meðal annars sagðar opinber spilling og hömlulaus glæpastarfsemi. Í júní sama ár var tilkynnt um stofnun æskulýðssamtaka AWB. Terre'Blanche var einn stofnandi þeirra.
Eugene Terre'Blanche var barinn til bana á búgarði sínum í norðvesturhluta Suður-Afríku 3. apríl 2010. Tveir voru handteknir fyrir að berja hann til dauða.
Skáldið Terre'Blanche
[breyta | breyta frumkóða]Terre'Blanche var einnig skáld. Verk hans voru á kennsluskrá í skólum í Natal héraði. Hann gaf einnig út á geisladisk safn ljóða sinna og nú síðast á DVD disk.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Fyrirmynd greinarinnar var „Truth and Reconciliation Commission (South Africa)“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 4. apríl 2010.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Afrikaner Weerstandsbeweging“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 4. apríl 2010.
- Fyrirmynd greinarinnar var „Eugène Terre'Blanche“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 4. apríl 2010.
- http://www.polity.org.za/polity/govdocs/commissions/1998/tebbutt/tebbutt1.html Geymt 7 júní 2011 í Wayback Machine
- „Hægriöfgamaður myrtur í Suður-Afríku“ á Mbl.is
- "Dæmdur fyrir morð á kynþáttahatara" Morgunblaðið: 22. ágúst 2012: Chris Mahlangu morðingi Eugene Terre'Blanche dæmdur.