Hvannalindir
Útlit
Hvannalindir eru gróðurvin í um 640 m hæð á Miðhálendinu við Lindá í Lindahrauni í Krepputunguhraunum. Þjóðvegur F903 liggur um lindirnar en Hvannalindir eru á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðar. Hvannalindir taka nafn sitt af ætihvönn sem er þar í ríkum mæli. Yfir 30 fuglategundir hafa sést þar.
Vinin fannst árið 1834 en Kristján Eldjárn rannsakaði mannvistarleifar þar, kofa og fjárrétt, árið 1941 en getgátur eru um að Fjalla-Eyvindur og Halla Jónsdóttir hafi dvalið þar. Minjarnar eru friðlýstar.
Tenglar
[breyta | breyta frumkóða]- Vatnajökulsþjóðgarður - Hvannalindir Geymt 6 ágúst 2019 í Wayback Machine
- Minjastofnun - Hvannalindir Geymt 15 ágúst 2019 í Wayback Machine
- Nat.is - Hvannalindir Geymt 18 ágúst 2019 í Wayback Machine