Fara í innihald

Varsjárgettóið

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Svæði gettósins innan Varsjár
Byggingar í gettóinu loga á meðan Þjóðverjar flytja gyðinga til fangabúðanna, árið 1943

Varsjárgettóið (pólska: Getto Warszawskie) var stærsta gettóið í Evrópu á tímum nasista í seinni heimsstyrjöldinni. Því var komið á fót í höfuðborg Póllands í október og nóvember 1940 en þar bjuggu 400.000 gyðingar á svæði sem var 3,4 ferkílómetrar að flatarmáli. Úr gettóinu voru um það bil 254.000 íbúar sendir til fangabúða sumarið 1942. Í janúar næsta ár byrjaði uppreisnin í Varsjárgettóinu þar sem 50.000 gyðingar til viðbótar voru drepnir. Uppreisninni lauk í maí og hafði þá gettóið verið lagt nær algerlega í rúst. Samtals dóu í það minnsta 300.000 pólskir gyðingar í gettóinu eða voru fluttir þaðan í útrýmingarbúðir.

Heimild

  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.