Pokadýr
Pokadýr (fræðiheiti: Marsupialia) eru dýr af frumstæðum ættbálki spendýra. Pokadýr eru flest með poka undir kviðnum og bera unga sína þar í uns þeir eru orðnir fullburða (sbr. t.d. kengúrur). Ástralía er helsta heimkynni pokadýranna, ásamt Nýju Gíneu. Í lok krítar og byrjun tertíer voru pokadýr aftur á móti algeng á öllum meginlöndum. Í Norður-Ameríku finnast 13 eða 14 tegundir en aðeins ein norðan Mexíkó, svonefnd virginíuposa oft kölluð pokarotta.
Pokadýr Tímabil steingervinga: Mitt krítartímabilið til nútíma | ||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Kvendýr austrænnar grákengúru með unga í pokanum.
| ||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||
| ||||||||||
Ættbálkar | ||||||||||